5.29.2003

Góða kvöldið.

Ég var að taka gríðarlega til á svæðinu mínu, eyða öllu út og skipuleggja þetta betur - sá reyndar bara rétt í þessu að linkurinn á heimasíðuna hér til vinstri var vitlaus...búið að eyða þeirri síðu út. Nú á þetta allt að virka sæmilega.

Ekki laust við að maður hafi verið með hjartað í buxunum....alltaf smá hræðsla við að maður sé að gleyma einhverjum tengingum.

Snilldarverkfæri í Dreamweaver..þetta Reports....í Site glugganum. Leitar að öllum mögulegum og ómögulegum villum á síðunni...maður fær sér bara kaffi á meðan :-)



Kveðja,
Balli
Jæja, þá er ég loksins að verða búinn með þetta allt saman....á þó slatta eftir, en glasið er hálffullt (ekki í bókstaflegri merkingu..he..heemm).

Ég setti tónlistarvefinn hérna, en á eftir að skoða hann í einni eða tveim öðrum tölvum til að fullvissa mig um að ég hafi hvergi tengt inn á harða drifið og svoleiðis leiðindi.
Þá breytti ég aðeins heimasíðunni hjá mér. Aðallega til að æfa mig í Fireworks forritinu. Myndin af mér er ótrúlega svöl...eða hitt þó! Reyndi að taka þúsund myndir, en endaði alltaf eins og misheppnaður stráklingur að reyna vera karlmannlegur :-)
Ég er sérlega ánægður með að hafa náð að gera ,,interactívt" vefpíanó á tónlistarvefinn - eftir gríðarlega leit að slíkri græju á netinu gafst ég upp og gerði sjálfur.
Þetta tók hátt í 20 tímana, enda óvanur Flash-vinnslu - svo þurfti maður að redda sér forritum til að klippa wavefælana sem ég spilaði inn af hljómborðinu. Klippti þá reyndar heldur knappt, en hef ekki þrek í að laga það þar til eftir mánaðarmót.


Nú þegar þetta fer að verða búið læðist auðvitað samviskubitið að vegna krakkanna. Mikið rosalega hef ég vanrækt þau upp á síðkastið - allur tími farið í þetta verkefni. Jæja...ég er svo þreyttur núna að ég gæti farið að skrifa eitthvað væmið. Best að hætta.

Kveðja,
Balli

5.24.2003

Góðan daginn.

Ég vildi bara láta vita aðeins af mér. Er að sjálfsögðu í tímahraki með þetta, vinn í vefsíðunum í öllum frístundum og meira til.

Ég gæti þurft að hreinsa út allar síður sem ég með núna - tímabundið - til að koma tónmenntavefnum upp og prófa hann. Hann er kominn vel yfir 10 Mb svo ég þurfti að versla nýtt vefsvæði fyrir hann. Er nú að bíða eftir að það verði virkjað svo ég geti flutt skrár beint úr Dreamweaver. Þetta átti að vera tilbúið en Vodafone er í einhverjum smá vandræðum með þetta.

Allavega - vefirnir mínir gætu legið eitthvað niðri næstu daga en verða (vonandi) komnir upp fyrir síðasta skiladag.

Kveðja,
Balli

5.17.2003

Góða kvöldið.

Ég er búinn að vinna í verkefnum í allt kvöld - eftir að börnin fengust í háttinn. Ég er alveg að tapa mér í þessu - fullmikil vinna miðað við einingafjölda, en þetta er gaman og það er það sem skiptir máli....ekki satt?

Nú ætla ég að leggjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á eins og einn þátt af "Cold Feet" - sá þann fyrsta á ævinni í gær og líkaði bara nokkuð vel. Ætti auðvitað að fara sofa....en maður hugsar bara þannig þegar maður vaknar á morgnanna....."í kvöld SKAL ég fara snemma að sofa....ég lofa...heheeemmm".

Bestu kveðjur, vona að allt gangi vel hjá ykkur öllum,
Balli

5.12.2003

Ég þakka upplýsingarnar varðandi WebBoard-ið. Er að byrja aftur á þessu öllu núna, þurfti að fara suður í nokkra daga.

Hafði reiknað með að geta unnið sleitulaust í þessu allan sólahringinn næstu 5 daga (er í fríi), en konan varð að fara í sína heimabyggð í nokkra daga og mun því mestur tíminn fara í ungana - ekki að maður sjái eftir því :-)
Annars er þetta vonandi allt í góðu, tímahrakið sér til þess að maður vinni í þessu allar þær stundir sem gefast.

Kveðja,
Balli.

5.07.2003

Góða kvöldið. Nú er fjör, allt komið á fullt og verkefnin sem ég er að vinna í skemmtileg - svona á þetta að vera!

Eitt sem mig vantar eftir tölvuhrunið - veffangið á Webboard síðunni....getur einhver bjargað mér með það?

Bestu kveðjur,
Balli

5.01.2003

Jæja...nú er allt komið á fullt hjá mér. Sjálfsvorkunin búinn og nóg að gera. Er að vinna í þessu öllu.....í einu...sem er kannski ekkert gríðarlega gáfulegt. Skipulagið fer að komast á hreint. Er mikið að velta þessum tónlistarvef fyrir mér - sennilega geri ég eins og Inga stakk upp á og hef hann tónmenntamiðaðann.

Bestu kveðjur,
Balli

4.27.2003

Góðan daginn.

Mátti ekki fara í vinnu í dag. Hringt í mig úr vinnunni og mér skipað að vera heima einn dag í viðbót....ekki búinn að fara úr húsi í 5 - 6 daga og er orðinn andlegur jafnoki túnfisks í dós.
Búinn að setja forritin inn í tölvuna....en hef ekki kraft í mér til að byrja að tengja þetta allt aftur og endurskipuleggja. Finnst samt pínulítið gott að vera með tölvuóþol á lokastigi...því ég veit að í kjölfar slíks verður til gríðarlegur sköpunarkraftur....svona þegar ég hef mig uppúr þessu. Ætla bara að góna á teiknimyndir með Köru Mist í smá stund og sjá hvort að krafturinn verði kominn í kvöld. Kannski fæ ég mér popp líka...ef ég nenni að kveikja á örbylgjuofninum....christ hvað sjálfsvorkun getur verið skemmtileg.....ég nærist á þessu........ég nenni ekki einu sinni að fylgjast með pólitíkinni þessa dagana, svo upptekinn er ég af eigin vansæld..harharhar. Er jafnvel að spá í að dreifa teiknibólum á hina ólíklegustu staði...svo ég geti óvart stigið á þær og vorkennt mér aðeins meira :-)

Jæja, nóg um það. Vona að allir hafi það gott. Nú fer ég að hella mér í slaginn...mjög fljótlega, enda tíminn alltaf að styttast fram að skilum.

Kveðja,
Balli